Sænski markvörðurinn Cornelia Hermansson hefur nú fengið félagaskipti yfir í ÍBV og er því lögleg með liðinu þegar Eyjakonur heimsækja ÍR í 5. umferð Olís-deildar kvenna á morgun í toppslag Olís-deildarinnar. 5.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í kvöld með leik Gróttu og KA/Þórs. Cornelia hefur gert tveggja ára samning við ÍBV en athygli vekur að félagið hefur enn ekkert fjallað um komu sænska markvarðarins á sínum miðlum. Handkastið greindi frá því í byrjun september að ÍBV hefði samið við Corneliu en hún mætti til Vestmannaeyja undir lok síðasta mánaðar og hóf þá æfingar með liðinu. Cornelia var hins vegar ekki lögleg með ÍBV í síðustu umferð þegar liðið vann HK í Kórnum þar sem enn átti eftir að ganga frá félagaskiptum hennar. Nú hefur verið gengið frá þeim málum og því ekkert því til fyrirstöðu að hún leiki sinn fyrsta leik fyrir ÍBV á morgun. Cornelia er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunn eftir þriggja ára dvöl hjá Selfossi á árunum 2022 til 2025. Þar átti hún meðal annars þátt í að koma liðinu aftur upp í Olís-deildina og lék með Selfossi þegar liðið hafnaði í fjórða sæti deildarinnar vorið 2025. Hún sneri aftur til Svíþjóðar síðasta sumar og gekk til liðs við Kungälv en meiðsli héldu henni frá keppni mánuðum saman á síðustu leiktíð. Corneliu er ætlað að fylla skarð norska markvarðarins Amalie Frøland sem sleit krossband í undanúrslitaeinvígi ÍBV og Hauka á síðasta tímabili. ÍBV hefur farið vel af stað í Olís-deildinni og er með sex stig eftir fjórar umferðir en ÍR er á toppi deildarinnar ásamt Haukum og Fram með fullt hús stiga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.