Sögulegt heimsmeistaramót hefst í Agadir í Marokkó þann 16. október þegar fyrsta heimsmeistaramót kvenna í flokki 16 ára og yngri fer fram. Alls taka 16 þjóðir frá fimm heimsálfum þátt í mótinu sem lýkur 24. október. Alþjóða handknattleikssambandið (IHF) hefur undanfarin ár lagt aukna áherslu á að skapa fleiri tækifæri fyrir unga handknattleiksmenn til að öðlast alþjóðlega reynslu. Í fyrra fór fyrsta heimsmeistaramót karla í flokki 17 ára og yngri fram og nú er komið að stelpunum. Riðlakeppnin fer fram 16., 18. og 20. október áður en undanúrslitin verða leikin 22. október. Úrslitaleikurinn fer síðan fram 24. október þegar fyrstu heimsmeistararnir í þessum aldursflokki verða krýndir. Sérstakar reglur á mótinu Það sem vekur einna mesta athygli eru sérstakar reglur sem verða í gildi á mótinu en þær voru einnig notaðar á HM karla í flokki 17 ára og yngri í fyrra. Meðal annars verður liðum óheimilt að skipta leikmönnum á milli varnar og sóknar með hefðbundnum hætti. Útileikmenn mega aðeins fara í skiptingu þegar þeirra lið er með boltann, nema um meiðsli sé að ræða eða þegar liðið tekur leikhlé. Ef lið framkvæmir skiptingu þegar mótherjarnir eru með boltann fær leikmaðurinn sem kemur inn á völlinn tveggja mínútna brottvísun. Þá verður liðum einnig óheimilt að leika sjö á móti sex í sókn. Markvörður verður að vera inni á vellinum allan tímann og má ekki fara yfir miðlínu inn á vallarhelming andstæðinganna. Brjóti markvörður gegn þeirri reglu fær hann tveggja mínútna brottvísun. Þrír dómarar dæma leikina Önnur athyglisverð nýjung er að þrír dómarar verða á vellinum í stað tveggja eins og tíðkast í hefðbundnum handbolta. IHF hefur undanfarin ár gert tilraunir með þriggja dómara kerfið, meðal annars á HM félagsliða árið 2022 og á nokkrum yngri landsliðsmótum. Kerfið var einnig notað á öllu heimsmeistaramóti karla í flokki 17 ára og yngri í fyrra. Leikið án klísturs Á mótinu verður leikið með bolta af stærð tvö og verður notkun klísturs alfarið bönnuð. Leiktíminn verður sá sami og í meistaraflokki, eða tvisvar sinnum 30 mínútur, með tíu mínútna hálfleikshléi. Öll liðin munu leika fimm leiki á mótinu, óháð árangri í riðlakeppninni. Aðeins sigurvegarar riðlanna komast í undanúrslit Þjóðunum 16 hefur verið skipt í fjóra fjögurra liða riðla. Aðeins sigurvegarar hvers riðils tryggja sér sæti í undanúrslitum en önnur lið leika um sæti í mótinu. Riðlarnir eru eftirfarandi: A-riðill: Kína, Marokkó, Bandaríkin og Kasakstan. B-riðill: Ungverjaland, Paragvæ, Gínea og Hvíta-Rússland. C-riðill: Þýskaland, Úsbekistan, Mexíkó og Túnis. D-riðill: Argentína, Egyptaland, Sviss og Rússland.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.