Það vita það allir að Emil Nielsen er besti markvörður í heimi
Mohamed Tageldin /AFP

Danski markvörðurinn Emil Nielsen átti stórkostlegan leik þegar ungverska stórliðið Veszprém vann Partizan Belgrad, 37–26, í Meistaradeild Evrópum í vikunni.

Nielsen varði hvorki meira né minna en 24 skot í leiknum og var maðurinn á bak við öruggan sigur ungverska liðsins. Veszprém hefur verið á mikilli siglingu að undanförnu og kom til leiks eftir að hafa tryggt sér heimsmeistaratitil félagsliða í Kaíró á dögunum eftir sannfærandi sigur á Barcelona í úrslitaleik keppninnar.

Xavi Pascual, þjálfari Veszprém, var í skýjunum með frammistöðu Nielsen og fór fögrum orðum um danska landsliðsmarkvörðinn á blaðamannafundi eftir leikinn.

„Það er erfitt að lýsa þessu. Vörnin okkar er nokkurn veginn sú sama og á síðasta tímabili en þessi maður gerir miklu meira en að verja skot. Hann er leiðtogi,“ sagði Pascual. Hann segir Nielsen auk þess hafa gríðarleg áhrif á varnarleik liðsins.

„Þegar mótherjarnir eru að fara að skjóta eru þeir svolítið hræddir. Það gefur vörninni okkar einn og hálfan metra til viðbótar. Með hann fyrir aftan okkur getum við verið árásargjarnari, tekið meiri áhættu og hlaupið miklu meira.“

Pascual tók síðan af allan vafa um hver hann telur besta markvörð heims vera.

„Ég get sagt ykkur að Emil Nielsen er besti markvörður í heimi. Það vita það allir. Það er frábært fyrir okkur að hafa hann og ég myndi vilja að hann yrði hjá okkur í mörg ár til viðbótar. Ég er gríðarlega stoltur af liðsheildinni okkar. Andrúmsloftið í hópnum um þessar mundir er ótrúlegt,“ sagði Pascual að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top