Í þýsku 2. Bundesligunni í Þýskalandi mátti markvörðurinn, Adam Thorstensen sætta sig við tap þegar Lübeck-Schwartau heimsótti Dessau-Roßlauer. Lokatölur urðu 37–33 fyrir heimamenn en Adam varði tvö skot. Adam gekk í raðir Lübeck-Schwartau í sumar frá Stjörnunni en liðið er í 5.sæti þýsku 2. Bundesligunnar með tíu stig að loknum sjö leikjum. Lübeck-Schwartau hafði yfirhöndina í hálfleik, 16–17, en heimamenn sneru leiknum sér í vil eftir hlé. Þetta var annað tap Lübeck-Schwartau á tímabilinu en liðið hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum. Adam og félagar mæta Potsdam á heimavelli á föstudaginn í næsta leik sínum í deildinni en Potsdam er í 4.sæti deildarinnar með 12 stig, jafn mörg stig og Leipzig, Hagen og Elbflorenz sem eru í efstu fjórum sætum deildarinnar. Þetta var aðeins annar sigur Dessau-Roßlauer á tímabilinu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.