Díana Dögg og Elín Rósa fengu skell í Meistaradeildinni
MARIJAN MURAT /AFP

Íslensku landsliðskonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir máttu þola stórt tap með Blomberg-Lippe þegar liðið tók á móti danska stórliðinu Odense í 5. umferð Meistaradeildar Evrópu í gær. Odense vann sautján marka sigur, 35-18, eftir að hafa leitt með tíu mörkum í hálfleik, 20-10.

Odense tók strax öll völd á vellinum og þýska liðið átti í miklum vandræðum með að finna leiðir í gegnum vörn danska liðsins. Gestirnir náðu snemma góðu forskoti og héldu áfram að bæta við það eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn.

Staðan var 20-10 í hálfleik og ljóst að erfitt verkefni beið Blomberg-Lippe í síðari hálfleiknum.

Odense hélt hins vegar áfram að yfirspila heimakonur eftir hlé og munurinn jókst enn frekar. Að lokum skildu sautján mörk liðin að, 35-18.

Díana Dögg skoraði tvö mörk úr fjórum skotum fyrir Blomberg-Lippe en Elín Rósa skoraði eitt mark úr sex skotum auk þess að gefa eina stoðsendingu. Nieke Kühne var markahæst hjá þýska liðinu með fjögur mörk.

Blomberg-Lippe hefur átt afar erfitt uppdráttar í Meistaradeildinni á sínu fyrsta tímabili í keppninni. Liðið hefur tapað öllum fimm leikjum sínum og situr á botni B-riðils án stiga. Odense komst hins vegar aftur á sigurbraut eftir þrjá tapleiki í röð í öllum keppnum. Danska liðið er nú með fimm stig í riðlinum, fjórum stigum á eftir toppliðunum Metz og Györ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top