Það var sérstök fjölskyldutengsl í leik í Meistaradeild kvenna um helgina þegar sænska landsliðskonan Tyra Axnér mætti liði föður síns, Tomas Axnér, sem er þjálfari danska stórliðsins Team Esbjerg. Tyra hafði betur í viðureigninni og skoraði fimm mörk í 34-31 sigri CSM București á Esbjerg. Tomas Axnér tók við þjálfun Team Esbjerg í sumar en hann hefur einnig verið landsliðsþjálfari Svíþjóðar undanfarin ár. Dóttir hans, Tyra Axnér, leikur með rúmenska stórliðinu CSM București og var því á öndverðum meiði við föður sinn þegar liðin mættust í Meistaradeildinni á sunnudaginn. Esbjerg hafði ekki tapað leik í Meistaradeildinni á tímabilinu fyrir viðureignina en rúmenska liðið náði að binda enda á sigurgöngu danska liðsins. CSM București hafði frumkvæðið stóran hluta leiksins og þrátt fyrir að Esbjerg næði að minnka muninn niður í eitt mark í síðari hálfleik tókst danska liðinu ekki að snúa leiknum sér í vil. Eftir leikinn var hún að vonum ánægð með sigurinn og þá sérstaklega að hafa fengið að mæta föður sínum í Meistaradeildinni. „Stemningin var frábær. Ég er ánægð með að pabbi hafi verið hér og fengið að upplifa stemninguna hjá CSM. Þetta var ákafur leikur og ég er ánægð með að við börðumst allt til enda,“ sagði Tyra í samtali við EHF eftir leikinn. Tomas Axnér hrósaði sömuleiðis rúmenska liðinu eftir leikinn og sagði erfitt að sækja stig til Búkarest. „Þetta var erfiður leikur. Það er erfitt að spila gegn CSM á þeirra heimavelli og þær voru hungraðar í stig. Við byrjuðum vel en CSM nýtti sér mistökin okkar,“ sagði Tomas.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.