Danska stórliðið Álaborg heldur áfram að vaxa jafnt innan vallar sem utan. Samkvæmt nýjum ársreikningi félagsins hefur starfsmannakostnaðurinn aukist um 132 prósent á síðustu fimm árum og er nú kominn í 43 milljónir danskra króna, jafnvirði um 900 milljóna íslenskra króna. Álaborg birti á föstudaginn ársreikning sinn fyrir tímabilið 2025/26 þar sem fram kemur að félagið hafi skilað hagnaði fimmtánda árið í röð. Hagnaður félagsins fyrir skatta nam 745.558 dönskum krónum á síðasta rekstrarári. Starfsmannakostnaðurinn hefur hins vegar aukist gríðarlega á undanförnum árum. Tímabilið 2020/21 var hann 18,5 milljónir danskra króna en er nú kominn í 43 milljónir. Það jafngildir 132 prósenta hækkun á fimm árum. Innifalið í þeirri upphæð eru laun leikmanna, þjálfara, stjórnenda og annars starfsfólks félagsins. Álaborg hefur á undanförnum árum fengið til sín nokkrar af stærstu stjörnum evrópsks handbolta, þar á meðal Niklas Landin, Sander Sagosen og Juri Knorr. Áhuginn á félaginu hefur einnig aukist verulega. Meðalaðsókn á heimaleiki Álaborgar á síðustu leiktíð var 5.274 áhorfendur og yfir þúsund manns eru á biðlista eftir ársmiðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.