Reynir Þór heitur í sigri Melsungen gegn lærisveinum Arnórs
Swen /AFP

Íslendingar komu við sögu í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag þegar MT Melsungen og Hamburg unnu bæði leiki sína.

Reynir Þór Stefánsson leikur með Melsungen og átti góðan leik en hann skoraði sex mörk í sannfærandi sigri liðsins á lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC en Melsungen var með yfirhöndina allan leikinn og landaði að lokum sjö marka sigri 33-26.

Hamburg vann einnig góðan sigur þegar liðið mætti Bietigheim á útivelli. Lokatölur urðu 35–30, Hamburg í vil. Staðan í hálfleik var 17–17, en Hamburg reyndist sterkara í síðari hálfleik og tryggði sér bæði stigin. Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá Hamburg.

Úrslit dagsins:
MT Melsungen 33–26 Bergischer HC
Bietigheim 30–35 Hamburg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top