Haukar völtuðu yfir Fram
Kristinn Steinn Traustason

Haukar unnu stórsigur á Fram, 39–23, í Olís-deild karla í kvöld þegar liðin mættust í Úlfarsárdalnum. Haukar höfðu mikla yfirburði og leiddu með tíu mörkum í hálfleik, 20–10.

Þetta var sjöundi sigur Hauka í jafnmörgum leikjum en liðið situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Fram tapaði hins vegar sínum fimmta leik í röð í deildinni og þeim sjötta í öllum keppnum.

Haukar byrjuðu af krafti og komust í 3–0. Eftir að staðan hafði verið 5–2 gestunum í vil skoruðu þeir sex mörk í röð og breyttu stöðunni í 11–2. Forskotið varð síðan þrettán mörk, 17–4, en Framarar minnkuðu muninn fyrir leikhlé.

Yfirburðir Hauka héldu áfram í síðari hálfleik og munurinn varð sautján mörk, 33–16. Að lokum skildu sextán mörk liðin að.

Freyr Aronsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson voru markahæstir Hauka með átta mörk hvor. Sigurður Jefferson Guarino skoraði fimm mörk og þeir Andri Fannar Elísson og Sigurður Snær Sigurjónsson fjögur hvor.

Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson markahæstur með átta mörk en Ívar Logi Styrmisson og Steinar Már Einarsson Clausen skoruðu þrjú mörk hvor.

Aron Rafn Eðvarðsson kom við sögu í liði Hauka í fyrsta skipti í vetur og varði þrjú skot. Grétar Ari Guðjónsson varði sjö skot og Ari Dignus Maríuson fjögur. Hjá Fram varði Stefán Freyr Jónsson sex skot og Jóhann Ágústsson fimm.

Framarar voru án sex mikilvægra leikmanna í kvöld. Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, Dánjal Ragnarsson, Erlendur Guðmundsson, Viktor Sigurðsson, Dagur Fannar Möller og Marel Baldvinsson voru allir fjarverandi og því veruleg skörð í leikmannahópi heimamanna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top