Óðinn markahæstur í Evrópudeildinni – Gunnar fimmti
Jón Gautur Fótó

Óðinn Þór Ríkharðsson, leikmaður Kadetten Schaffhausen, er markahæstur í Evrópudeild karla eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Hann hefur skorað 33 mörk samkvæmt samantekt Handknattleikssambands Evrópu, EHF.

Óðinn Þór er þremur mörkum á undan Frederik Pedersen, leikmanni Elverum, sem hefur skorað 30 mörk. Kevin Gulliksen, einnig hjá Elverum, og Délcio Morena de Pina hjá Marítimo koma næstir með 26 mörk hvor.

Gunnar Róbertsson, leikmaður Vals, er í fimmta sæti listans með 25 mörk og því eru tveir Íslendingar á meðal fimm markahæstu leikmanna keppninnar.

Tim Jenko Bogdanić hjá Tatran Prešov og Andrei Drăgan hjá CSM București fylgja fast á hæla Gunnari með 24 mörk hvor.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top