Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, valdi engan leikmann frá þýsku meisturunum í SC Magdeburg í 18 manna landsliðshóp sinn fyrir komandi leiki í undankeppni EM. Þar á meðal eru vinstri hornamennirnir Lukas Mertens og Matthias Musche, en samkvæmt upplýsingum Handball-world eru þeir báðir enn inni í myndinni fyrir heimsmeistaramótið í janúar. Alfreð tilkynnti landsliðshóp sinn á þriðjudaginn fyrir síðustu æfingabúðirnar áður en undirbúningur fyrir HM á heimavelli hefst. Þýskaland mætir Belgíu 5. nóvember og Slóvakíu 8. nóvember í undankeppni Evrópumótsins. Það vakti athygli að enginn leikmaður frá SC Magdeburg skyldi vera í hópnum, ekki einu sinni þeir Lukas Mertens og Matthias Musche sem hafa báðir verið hluti af þýska landsliðinu. Ein ástæða þess að Alfreð valdi hvorki Mertens né Musche er að hann vill gefa nýjum leikmanni tækifæri í vinstri hornastöðunni. Fyrir valinu varð David Móré frá ThSV Eisenach, sem hefur verið í frábæru formi í Bundesligunni. Móré hefur nýtt 91,89 prósent færa sinna á tímabilinu og er með 77 stig að meðaltali í HPI-frammistöðumati deildarinnar og fær hann nú sitt fyrsta tækifæri með þýska landsliðinu. Hinn vinstri hornamaðurinn í hópnum er Tim Freihöfer frá Füchse Berlin. Freihöfer, sem er 24 ára, hefur skorað 47 mörk í Bundesligunni á tímabilinu og er með 78 stig í HPI-matinu. Hann er því hæst metni þýski vinstri hornamaðurinn í deildinni um þessar mundir. Mertens, sem hefur jafnan verið fastamaður í þýska landsliðinu, varð því utan hóps að þessu sinni. „Við viljum vinna leikina, það er markmið vikunnar gegn Belgíu og Slóvakíu. Á sama tíma ætlum við að styrkja okkar taktíska leik fyrir janúar,“ sagði Alfreð við heimasíðu þýska handknattleikssambandsins. Hann segir mikilvægt að halda í kjarna leikmanna sem þekki vel til leikskipulags landsliðsins en jafnframt gefa nýjum leikmönnum tækifæri til að sýna sig. „Við höfum lagt áherslu á að fylgjast með fleiri leikmönnum í ákveðnum stöðum. Þess vegna eru Niklas Theiß og David Móré með okkur að þessu sinni. Við viljum sjá þá í okkar umhverfi,“ sagði Alfreð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.