Krickau fær ekki frið fyrir sigurmarki Pytlick á Instagram
Frank Hoermann /AFP

Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlin, á erfitt með að gleyma dramatísku tapi liðsins gegn SG Flensburg-Handewitt í þýsku Bundesligunni. Simon Pytlick tryggði Flensburg 34-33 sigur með marki úr aukakasti á síðustu sekúndu leiksins og segir Krickau að samfélagsmiðlar hafi ekki hjálpað honum að gleyma atvikinu.

Pytlick, sem gengur til liðs við Füchse Berlin sumarið 2027, skoraði sigurmarkið með beinu aukakasti sem fór í gegnum varnarvegg Berlínarliðsins, á milli þeirra Max Darj og Frederik Simak.

Markið hefur reynst Krickau erfitt að losna við, ekki síst vegna þess hversu oft hann hefur séð það á samfélagsmiðlum.

„Því miður er ég líka með Instagram-aðgang og mér var sýnt þetta helvíti aftur og aftur,“ sagði Krickau í viðtali við SPORT BILD.

Tapið gegn Flensburg kom í kjölfar 36-37 taps Füchse Berlin gegn Lemgo og hefur það aukið pressuna á Berlínarliðið í baráttunni um þýska meistaratitilinn.

Krickau hefur þó ekki miklar áhyggjur af stöðunni í deildinni.

„Auðvitað hefði ég viljað fá stigin tvö gegn Lemgo og annað stigið gegn Flensburg. En við höfum ekki tapað fyrir liðum sem við töpuðum ekki líka fyrir á síðasta tímabili. Staðan hefði litið betur út, en maður getur í raun ekki gert ráð fyrir því að ná í stig á útivelli gegn Magdeburg og Flensburg,“ sagði danski þjálfarinn.

Þrátt fyrir svekkjandi niðurstöðu gegn Flensburg sá Krickau ýmislegt jákvætt í frammistöðu sinna manna.

Füchse Berlin tókst tvisvar að vinna sig aftur inn í leikinn eftir að hafa lent annars vegar fjórum mörkum undir og hins vegar þremur mörkum undir.

Krickau telur það sýna góðan karakter í liðinu en segir að bæta þurfi færanýtinguna.

„Við sýndum að við getum spilað góðan handbolta og mér fannst ekki eins og okkur skorti kraft á lokakaflanum. Síðasta markið snerist einfaldlega um heppni eða óheppni. En við þurfum að ná betri skotnýtingu á öllum köflum leiksins svo við séum ekki háðir svona marki í lokin,“ sagði Krickau.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top