Þýsku stórliðin THW Kiel og Füchse Berlin eru bæði sögð hafa áhuga á að fá þýska landsliðsmarkvörðinn David Späth til liðs við sig. Späth er samningsbundinn Rhein-Neckar Löwen til sumarsins 2029 en möguleiki er talinn á að hann yfirgefi félagið áður en samningurinn rennur út. Þetta kemur fram hjá þýska miðlinum Sport Bild en þar segir að bæði Kiel og Füchse Berlin fylgist grannt með stöðu hins 24 ára gamla markvarðar. Späth hefur verið á mála hjá Rhein-Neckar Löwen frá árinu 2018 og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn af markvörðum þýska landsliðsins undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. Hann hefur myndað markvarðapar með Andreas Wolff í þýska landsliðinu og verið orðaður við stærstu félög Þýskalands. Hjá Kiel eru fyrir tveir öflugir markverðir, Andreas Wolff og Gonzalo Pérez de Vargas. Báðir eru þeir 35 ára gamlir og því gæti félagið verið farið að huga að framtíðinni í markvarðastöðunni. Staðan hjá Füchse Berlin er hins vegar nokkuð önnur. Berlínarliðið fékk sænska landsliðsmarkvörðinn Andreas Palicka til liðs við sig síðasta sumar en hann skrifaði aðeins undir eins árs samning. Palicka gæti því yfirgefið félagið næsta sumar. Füchse er jafnframt með hinn unga Lasse Ludwig á samningi til ársins 2030 en félagið er sagt vilja bæta við öðrum öflugum markverði. Á dögunum greindi Bob Hanning, framkvæmdastjóri Füchse Berlin, frá því að félagið stefndi að því að bæta þremur heimsklassaleikmönnum við hópinn næsta sumar. Félagið hefur þegar tryggt sér þjónustu Simon Pytlick og Dika Mem og ljóst er að metnaðurinn hjá Berlínarliðinu er mikill. Späth gæti því orðið næsta stóra nafnið á óskalista félagsins. Fari svo að Späth yfirgefi félagið áður en samningur hans rennur út má gera ráð fyrir að kaupverð hans verði töluvert.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.