Haukar tóku risastórt skref í átt að næstu umferð Evrópubikars karla þegar liðið gjörsigraði Handball Esch frá Lúxemborg, 41-21, í fyrri viðureign liðanna á Ásvöllum í dag. Þrátt fyrir að leikurinn hafi farið fram á heimavelli Hauka í Hafnarfirði taldist hann sem heimaleikur Esch. Liðin mætast öðru sinni á Ásvöllum á morgun en þá verða Haukar skráðir sem heimalið. Haukar eru því í afar vænlegri stöðu fyrir síðari viðureignina og má segja að liðið sé komið með annan fótinn í næstu umferð keppninnar eftir tuttugu marka stórsigur. Haukar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 9-3 á fyrstu fjórtán mínútunum. Hafnfirðingar héldu áfram að bæta við forskotið og leiddu með tíu mörkum í hálfleik, 19-9. Yfirburðir Hauka héldu áfram í síðari hálfleik og náðu leikmenn Esch aldrei að ógna forskoti þeirra. Haukar héldu áfram að auka muninn og fögnuðu að lokum öruggum tuttugu marka sigri, 41-21. Össur Haraldsson fór mikinn í liði Hauka og skoraði þrettán mörk úr fjórtán skotum. Andri Fannar Elísson kom næstur með sjö mörk úr tíu skotum og Hergeir Grímsson skoraði fjögur mörk. Sigurður Snær Sigurjónsson og Birkir Snær Steinsson skoruðu þrjú mörk hvor en Ólafur Ægir Ólafsson og Sigurður Jefferson Guarino skoruðu tvö mörk hvor. Grétar Ari Guðjónsson varði sjö skot í marki Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson þrjú. Hjá Esch var Afonso Duarte Clemente markahæstur með sjö mörk. Haukar mæta því til leiks á morgun með tuttugu marka forskot í farteskinu og þurfa ótrúleg úrslit að líta dagsins ljós til þess að liðið missi af sæti í næstu umferð Evrópubikarsins. Síðari leikurinn fer fram á Ásvöllum á morgun klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Frítt er á leikinn á morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.