Íslenska kvennalandsliðið mátti þola eins marks tap gegn Póllandi, 34-35, í síðari vináttulandsleik þjóðanna í vikunni. Íslenska liðið hafði betur í fyrri viðureigninni en Pólverjar náðu að hefna fyrir það í æsispennandi leik í dag. Leikið var í Katowice í Póllandi. Íslenska liðið byrjaði leikinn af krafti og komst í 4-1 snemma leiks. Pólverjar náðu hins vegar fljótlega að vinna sig inn í leikinn og var jafnræði með liðunum lengst af fyrri hálfleiks. Íslenska liðið náði tveggja marka forskoti, 10-8, en Pólverjar svöruðu með þremur mörkum í röð og komust yfir, 11-10. Liðin skiptust á að hafa forystuna það sem eftir lifði fyrri hálfleiks en Pólverjar áttu síðasta orðið og leiddu með einu marki í leikhléi, 21-20. Íslensku stelpurnar byrjuðu síðari hálfleikinn vel og komust yfir, 23-21, eftir mark frá Elínu Klöru Þorkelsdóttur á 33. mínútu. Pólverjar gáfust þó ekki upp og héldu áfram að veita íslenska liðinu harða mótspyrnu. Þegar rúmar tíu mínútur voru eftir var staðan jöfn, 29-29, en þá tóku Pólverjar frumkvæðið og náðu tveggja marka forskoti. Þegar sex mínútur voru eftir leiddu gestirnir 33-31 og bættu síðan við marki úr vítakasti og komust í 34-32. Lokamínúturnar voru æsispennandi. Thea Imani Sturludóttir minnkaði muninn í eitt mark, 33-34, á lokamínútunni en Katarzyna Cygan kom Pólverjum aftur tveimur mörkum yfir, 35-33. Katrín Anna Ásmundsdóttir skoraði síðasta mark leiksins þegar örfáar sekúndur voru eftir en nær komst íslenska liðið ekki og eins marks tap varð niðurstaðan, 34-35. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með níu mörk. Thea Imani Sturludóttir skoraði sex mörk og Sandra Erlingsdóttir fimm, öll úr vítaköstum. Katrín Anna Ásmundsdóttir bætti við þremur mörkum. Sara Sif Helgadóttir varði níu skot í marki Íslands og var með 33% markvörslu en Hafdís Renötudóttir varði fimm skot. Hjá Póllandi var Magda Balsam markahæst með níu mörk, þar af sjö úr vítaköstum en hún var jafnframt valin besti leikmaður leiksins en Daria Michalak skoraði fimm mörk. Leikirnir eru liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir Evrópumótið sem hefst í desember en Ísland leikur sína leiki í riðlakeppninni í Oradea í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.