Thea Imani Sturludóttir lék sinn 100. A-landsleik fyrir íslenska kvennalandsliðið um helgina þegar Ísland mætti Póllandi í síðari vináttulandsleik þjóðanna í Katowice. Thea Imani fagnaði tímamótunum með því að skora sex mörk fyrir íslenska liðið sem mátti sætta sig við naumt 35-34 tap eftir spennandi viðureign. Hún var næstmarkahæst í íslenska liðinu á eftir Elínu Klöru Þorkelsdóttur sem skoraði níu mörk. Thea Imani er aðeins tólfta íslenska handboltakonan í sögunni sem nær þeim merka áfanga að leika 100 A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Hún lék sinn 99. landsleik á fimmtudaginn þegar Ísland vann Pólland 35-32 og skoraði þrjú mörk í þeirri viðureign. Með þeim mörkum komst hún upp í 11. sæti yfir markahæstu landsliðskonur Íslands frá upphafi. Fyrir leikinn í gær hafði Thea Imani skorað 227 mörk í 99 landsleikjum en með mörkunum sex er hún nú komin með 233 mörk í 100 landsleikjum. Thea Imani er jafnframt leikreyndasti leikmaður núverandi landsliðshóps Íslands. Hún leikur með rúmenska liðinu SCM Universitatea Craiova.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.