Stórhuga Danir byggja nýja höll
Jens Ørgaard Jensen

Danska handknattleiksfélagið HÖJ Elite heldur áfram að byggja upp starfsemi sína af miklum metnaði. Félagið, sem hefur fengið til sín stórstjörnur á borð við Lasse Andersson, Jannik Green og Hampus Wanne, hefur nú fengið samþykki fyrir byggingu nýrrar fjölnota íþróttahallar sem mun rúma 1.700 áhorfendur.

HÖJ Elite féll úr dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en stefnir á að endurheimta sæti sitt meðal þeirra bestu strax í vor.

Félagið hefur styrkt leikmannahópinn verulega með komu þeirra Lasse Andersson, Jannik Green og Hampus Wanne og er sem stendur á toppi deildarinnar með 14 stig.

Uppbyggingin hjá félaginu einskorðast þó ekki við leikmannahópinn því nú stendur einnig til að bæta aðstöðuna verulega.

HÖJ Elite leikur heimaleiki sína í Ölstykke Halls, sem rúmar um 500 áhorfendur.

Með nýrri fjölnota íþróttahöll í Ölstykke mun áhorfendarýmið meira en þrefaldast, en gert er ráð fyrir að nýja höllin taki 1.700 áhorfendur.

Helle Rasmussen, framkvæmdastjóri HÖJ Elite, segir nýju höllina mikilvægan áfanga í áframhaldandi uppbyggingu félagsins.

„Við eigum okkur drauma og höfum metnað. Fjölnota höllin gefur okkur tækifæri til að taka næsta skref og halda áfram að þróa félagið,“ sagði Rasmussen.

Nýja íþróttahöllin verður um 4.500 fermetrar að stærð og mun meðal annars hýsa líkamsræktaraðstöðu, kaffihús, fundarherbergi, æfingaaðstöðu og búningsklefa.

Höllin verður ekki eingöngu ætluð fyrir handbolta á hæsta stigi heldur einnig almenningsíþróttir og menningarviðburði.

„Við viljum skapa stað þar sem fólk hefur gaman af því að koma saman, hittast og vera hluti af einhverju sameiginlegu,“ sagði Rasmussen.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki árið 2028.

Heildarkostnaður við bygginguna er áætlaður um 110 milljónir danskra króna og verður hún fjármögnuð af Egedal-sveitarfélaginu ásamt einkaframlagi frá eigendahópnum á bak við HÖJ Elite.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top