Fram vann gríðarlega mikilvægan sigur á Selfossi, 35-29, þegar liðin mættust í Olís-deild karla á Selfossi í kvöld. Liðin sátu í tveimur neðstu sætum deildarinnar fyrir leikinn og því mikið undir í baráttunni um að koma sér frá botninum. Framarar höfðu endurheimt Dag Fannar Möller og Marel Baldvinsson úr meiðslum fyrir leikinn og reyndist endurkoma þeirra kærkomin fyrir Safamýrarliðið. Gestirnir byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 4-1 eftir rúmlega sex mínútna leik. Selfyssingar náðu þó að jafna metin í 5-5 en þá tóku Framarar aftur við sér og skoruðu þrjú mörk í röð. Fram hélt áfram að bæta í forskotið og komst í 14-9 þegar rúmlega 19 mínútur voru liðnar. Selfyssingar áttu erfitt með að finna svör við sóknarleik gestanna og þegar fyrri hálfleikur var að renna sitt skeið var Fram komið með átta marka forskot, 20-12. Heimamenn náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikhlé en Framarar gengu til búningsherbergja með sex marka forskot, 22-16. Fram hélt áfram að hafa frumkvæðið í síðari hálfleik og komst í 26-19 eftir rúmlega 31 mínútu. Selfyssingar reyndu að saxa á forskotið og minnkuðu muninn í fjögur mörk, 24-28, þegar um 20 mínútur voru eftir. Gestirnir svöruðu hins vegar með góðum kafla og náðu aftur sjö marka forskoti, 31-24. Selfyssingar náðu að minnka muninn í 28-31 þegar rúmar tíu mínútur voru eftir, en nær komust þeir ekki. Framarar skoruðu þá fjögur mörk í röð og gerðu endanlega út um leikinn. Lokatölur urðu 35-29 og mikilvæg tvö stig fóru því með Fram í Safamýrina. Ragnar Hjálmarsson var markahæstur Selfoss með tíu mörk, Hannes Höskuldsson skoraði fimm og Valdimar Örn Ingvarsson fjögur. Hjá Fram var Ívar Logi Styrmisson markahæstur með sjö mörk, Haukur Ingi Hauksson skoraði sex og Daniel Stefán Reynisson fimm. Marel Baldvinsson skoraði fjögur mörk í endurkomu sinni og Dagur Fannar Möller bætti við þremur. Alexander Hrafnkelsson varði tíu skot í marki Selfoss og Ísak Kristinn Jónsson tvö. Hjá Fram varði Arnór Máni Daðason tólf skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.