Valur hafði betur gegn Stjörnunni, 37-34, í markaleik í Olís-deild karla í Garðabæ í kvöld. Valsmenn voru með þriggja marka forskot í hálfleik, 20-17, og héldu forystunni allan síðari hálfleikinn. Stjörnumenn voru sjálfum sér verstir eftir hlé. Þeir fóru illa með aragrúa af dauðafærum og klúðruðu meðal annars fjórum hraðaupphlaupum þegar þeir áttu möguleika á að saxa á forskot Vals. Gestirnir höfðu náð fjögurra marka forskoti undir lok fyrri hálfleiks en Stjarnan minnkaði muninn í þrjú mörk áður en gengið var til búningsherbergja. Stjarnan sótti að Val eftir hlé og minnkaði muninn nokkrum sinnum í eitt mark, síðast í stöðunni 26-27. Nær komust heimamenn þó ekki og Valsmenn náðu að auka forskotið á ný. Valur komst mest sex mörkum yfir, 36-30, þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir. Stjarnan skoraði þrjú mörk í röð og minnkaði muninn en tíminn var naumur og sigur Vals niðurstaðan. Arnór Snær Óskarsson og Ísak Logi Einarsson voru markahæstir í leiknum með ellefu mörk hvor fyrir Val og Stjörnuna. Andri Finnsson skoraði sjö mörk fyrir Val og Bjarni í Selvindi sex, en Gauti Gunnarsson gerði sex mörk fyrir Stjörnuna. Í marki Vals varði Jens Sigurðarson ellefu skot og Sigurður Dan Óskarsson varði tíu í marki Stjörnunnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.