FH og KA mætast í áhugaverðum leik í 8. umferð Olís-deildar karla í kvöld en flautað verður til leiks klukkan 18:30. Klukkutíma síðar hefst viðureign Hauka og HK á Ásvöllum. Hitað var upp fyrir umferðina í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem Einar Ingi Hrafnsson spáði KA sigri gegn FH á meðan Stymmi klippari taldi að FH myndi hafa betur. Einar Ingi var staddur í KA-heimilinu í síðustu viku þegar KA vann góðan sigur á Aftureldingu. Þar átti Bjarni Ófeigur Valdimarsson ekki sinn besta leik en það kom þó ekki að sök. Einar Ingi var spurður út í frammistöðu Bjarna í þeim leik og hvernig honum þætti leikmaðurinn hafa komið undan síðustu vikurnar. „Hann var ekkert svakalega heitur og mér finnst hann léttari en hann var í fyrra og mér finnst hann auðveldari viðureignar. Það er auðveldara að takast á við hann núna en í fyrra. Ég þekki ekki tölurnar á vigtinni en mér finnst hann vera 4–5 kílóum léttari en í fyrra,“ sagði Einar Ingi í Handkastinu. Sérfræðingurinn velti því fyrir sér hvort breytt hlutverk Bjarna í sóknarleik KA gæti skýrt frammistöðu hans en Dagur Árni Heimisson hefur verið áberandi í sóknarleik Akureyringa á tímabilinu. „Þetta snýst ekkert um leikstíl KA og það að Dagur Árni Heimisson sé að taka meira til sín? Í fyrra snerist þetta allt um Bjarna Ófeig hjá KA,“ spurði Sérfræðingurinn. Einar Ingi tók undir að breytt hlutverk gæti haft áhrif og benti jafnframt á að Bjarni hefði misst úr leiki vegna meiðsla fyrr á tímabilinu. „Jú auðvitað og þeir eru enn þá að reyna að finna taktinn saman. Bjarni Ófeigur var með í byrjun móts og síðan datt hann út vegna meiðsla. Þeir virðast enn þá vera að reyna að finna hvernig þeir geta hámarkað hvorn annan. Þeir eru með fimm sigra en eru búnir að tapa gegn Stjörnunni, Víkingi í bikarnum og Þór á heimavelli. Þetta eru leikir sem þeir eiga að vinna en þeir geta ekki treyst svona mikið á Dag Árna, þeir verða að fá Bjarna sterkari inn,“ sagði Einar Ingi. KA hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum í Olís-deildinni og getur með sigri gegn FH í kvöld haldið sér í baráttunni við efstu lið deildarinnar. FH fær hins vegar tækifæri til að stöðva gott gengi Akureyringa og verður fróðlegt að sjá hvort spá Einars Inga eða Stymma klippara gengur eftir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.