Þrjú lið jöfn að stigum fyrir lokaumferðina í Meistaradeildinni
Andreas Gora /AFP

Reynir Þór Stefánsson og félagar hans í þýska liðinu MT Melsungen eiga mikilvægan leik fyrir höndum í dag þegar liðið heimsækir Vardar frá Norður-Makedóníu í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.

Melsungen er í harðri baráttu um sæti í milliriðlum keppninnar en þrjú lið í B-riðli, Melsungen, Wisla Plock og Nantes, eru öll með sex stig fyrir lokaumferðina. Þýska liðið er þó í góðri stöðu þar sem sigur eða jafntefli gegn Vardar nægir til að tryggja sæti í milliriðlunum.

Melsungen gæti jafnvel komist áfram þrátt fyrir tap, en þá þyrfti Wisla Plock að tapa sínum leik gegn Nantes. Melsungen hélt vonum sínum um áframhaldandi þátttöku á lífi með mikilvægum 28-26 sigri gegn Wisla Plock í síðustu umferð.

Leikurinn verður jafnframt sérstakur fyrir Roberto Parrondo, þjálfara Melsungen og Dainis Kristopans, leikmann liðsins, sem snúa aftur til Skopje. Þeir urðu báðir Evrópumeistarar með Vardar á sínum tíma.

Á sama tíma mætast Wisla Plock og Nantes í Póllandi þar sem sigurliðið tryggir sér áframhaldandi þátttöku.

Leikur Vardar og Melsungen hefst klukkan 17:45 og verður sýndur í beinni á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top