Mikkel Hansen mætti fyrir dóm
HENNING BAGGER /AFP

Fyrrverandi danska handboltastjarnan Mikkel Hansen mætti fyrir dóm í Kaupmannahöfn í gær vegna ágreinings við streymisveituna HBO Nordic um notkun á myndum af honum í auglýsingaskyni.

Hansen er einn tólf danskra íþróttamanna sem hafa höfðað mál gegn fyrirtækinu vegna meintrar óheimillar notkunar á myndum þeirra og nöfnum í tengslum við markaðssetningu áskriftarþjónustu á Ólympíuleikunum í París árið 2024.

Íþróttamennirnir fara samtals fram á um tvær milljónir danskra króna í bætur en krafa Hansens hljóðar upp á 200.000 danskar krónur.

Hansen gaf skýrslu fyrir Sø- og Handelsretten í Kaupmannahöfn á mánudag og sagðist ósáttur við að hafa verið notaður í markaðssetningu þjónustu sem hann hefði ekki samþykkt að auglýsa.

„Auðvitað tel ég þetta vandamál. Vandamálið er að ég er notaður sem auglýsing fyrir vöru sem ég hef ekki veitt leyfi til að tengjast,“ sagði Hansen fyrir dómi samkvæmt umfjöllun Ekstra Bladet.

HBO Nordic hafnar kröfum íþróttamannanna og telur að myndbirtingarnar hafi verið heimilar. Fyrirtækið byggir meðal annars á því að myndirnar hafi verið notaðar í ritstjórnarlegum tilgangi og að íþróttamennirnir hafi samþykkt tiltekna skilmála vegna þátttöku sinnar á Ólympíuleikunum.

Hansen telur hins vegar að undirritun þeirra skilmála hafi verið formsatriði sem íþróttamenn hafi þurft að ganga í gegnum til að fá að taka þátt í leikunum. Réttarhöldin halda áfram næstu daga og verður fróðlegt að sjá niðurstöðu málsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top