Haukar og Monsi fara til Slóveníu í Evrópubikarnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar mæta RK Slovenj Gradec frá Slóveníu í 3. umferð Evrópubikars karla. Dregið var í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu (EHF) í Vínarborg í dag.

Haukar tryggðu sér sæti í 3. umferðinni um helgina þegar liðið hafði betur gegn Esch frá Lúxemborg í tveimur leikjum á Ásvöllum.

Haukar eiga heimaleikjaréttinn í fyrri viðureigninni gegn Slovenj Gradec, sem fram fer helgina 21.–22. nóvember. Síðari leikurinn fer síðan fram í Slóveníu helgina 28.–29. nóvember.

Slovenj Gradec er um þessar mundir í 5.sæti úrvalsdeildarinnar í heimalandinu með 12 stig eftir níu leiki. Slovan er á toppi deildarinnar með 16 stig en Slovan er í riðli með Val í Evrópudeildinni.

Úlfar Páll Monsi, leikmaður norðurmakedónska liðsins Alkaloid, fær einnig slóvenska mótherja en Alkaloid dróst gegn RK Gorenje Velenje sem er í 7.sæti deildarinnar í Slóveníu með átta stig.

Alkaloid varð Evrópubikarmeistari tímabilið 2024/25 og er því eitt þeirra liða sem hafa reynslu af því að fara alla leið í keppninni.

Alls eru 32 lið frá 24 þjóðum eftir í Evrópubikarnum og mun þeim fækka niður í sextán eftir leikina í nóvember.

Norðurmakedónska liðið GRK Ohrid er ríkjandi Evrópubikarmeistari og mætir Dragunas Klaipeda frá Litháen í 3. umferðinni.

Viðureignirnar í 3. umferð Evrópubikars karla 2026/27

HRK Gorica (Króatía) – roomz JAGS Vöslau (Austurríki)

Haukar (Ísland) – RK Slovenj Gradec (Slóvenía)

RK Dubocica 54 (Serbía) – BK-46 (Finnland)

AEK (Grikkland) – PLER-Budapest (Ungverjaland)

HC Vojvodina (Serbía) – MSK Povazska Bystrica (Slóvakía)

Runar Sandefjord (Noregur) – AHC Potaissa Turda (Rúmenía)

Olympiacos SFP (Grikkland) – MRK Sloga Doboj (Bosnía og Hersegóvína)

Dragunas Klaipeda (Litháen) – GRK Ohrid (Norður-Makedónía)

HC Lovcen Cetinje (Svartfjallaland) – SCM Politehnica Timisoara (Rúmenía)

HC Alkaloid (Norður-Makedónía) – RK Gorenje Velenje (Slóvenía)

AS SGS Ramat Hasharon (Ísrael) – A.C. PAOK (Grikkland)

Põlva Serviti (Eistland) – HC Dukla Praha (Tékkland)

H71 (Færeyjar) – Rebud KPR Ostrovia Ostrow Wlkp (Pólland)

RK Trimo Trebnje (Slóvenía) – Pfadi Winterthur (Sviss)

Besiktas JK (Tyrkland) – Raimond Sassari (Ítalía)

HV KRAS/Volendam (Holland) – BSV Bern (Sviss)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top