Fjölnir og Grótta 2 mættust í Grill 66 deild kvenna í Egilshöll í dag. Fjölnis konur voru alltaf skrefi framar í fyrri hálfleik. Leiddu þær m.a 9-5 og 12-7. Léku þær áfram vel síðustu mínúturnar í fyrri hálfleik og var staðan 18-12 þegar gengið var inn til búningsherbergja í hálfleik. Í seinni hálfleik hélst munurinn alltaf í 5-7 mörkum og Gróttu stelpur gerðu sig aldrei líklega til að komast nær Fjölnis liðinu. Að lokum fór það þannig að Fjölnir sigraði 31-26. Mikilvæg stig í baráttunni hjá þeim. Hjá Fjölni var Sara Kristín Pedersen markahæst með 9 mörk. Sara Xiao Reykdal varði 10 skot. Hjá Gróttu var Elísabet Ása Einarsdóttir markahæst með 7 mörk. Soffía Helen Sölvadóttir varði 9 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.