HK keyrði yfir Gróttu í Kórnum
Sævar Jónasson

HK vann öruggan tíu marka sigur á Gróttu, 27-17, þegar liðin mættust í Olís-deild kvenna í Kórnum í dag. HK var sex mörkum yfir í hálfleik, 14-8, og hélt áfram að auka forskotið í síðari hálfleik.

Grótta skoraði fyrsta mark leiksins en HK tók fljótlega frumkvæðið og komst í 4-1 eftir rúmlega sex mínútna leik. Heimakonur héldu áfram að bæta við forskotið og komust í 7-3 þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar.

HK náði sex marka forskoti í stöðunni 9-3 en Grótta svaraði með þremur mörkum í röð og minnkaði muninn í 9-6. HK náði hins vegar aftur undirtökunum og komst í 11-6 og síðar 14-7. Ída Margrét Stefánsdóttir skoraði síðasta mark fyrri hálfleiks fyrir Gróttu og staðan var 14-8 í leikhléi.

HK byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og skoraði þrjú fyrstu mörkin. Staðan var orðin 17-8 eftir tæplega 35 mínútna leik og forskot heimakvenna komið í níu mörk.

Grótta minnkaði muninn í 18-13 en HK svaraði með sex mörkum í röð og komst í 24-13 þegar rúmlega 51 mínúta var liðin. Þar með var forskotið orðið ellefu mörk.

Grótta náði að minnka muninn í 25-16 undir lokin en HK átti síðasta mark leiksins þegar Auður Guðmundsdóttir skoraði og innsiglaði 27-17 sigur heimakvenna.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var markahæst hjá HK með sex mörk, Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoraði fimm og þær Hekla Sóley Halldórsdóttir og Sóley Ívarsdóttir fjögur hvor. Daníela Sara B. Björnsdóttir átti stórleik í marki HK og varði 18 skot.

Hjá Gróttu var Eva Björk Davíðsdóttir markahæst með sjö mörk og Dagmar Guðrún Pálsdóttir skoraði fjögur. Elísabet Ása Einarsdóttir bætti við tveimur mörkum. Andrea Gunnlaugsdóttir varði níu skot og Anna Karólína Ingadóttir eitt.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top