Selfoss 2 og Fram 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla á Selfossi. Selfyssingar byrjuðu betur í leiknum og náðu yfirhöndinni. Um miðbik hálfleiksins jöfnuðust leikar og Framarar náðu svo að komast yfir í stutta stund. Selfyssingar náðu svo vopnum sínum aftur á nýjan leik og þeir fóru inn til búningsherbergja með 3 marka forskot. 18-15 voru hálfleikstölur. Seinni hálfleikur var jafn og spennandi og hart barist. Lítið var á milli liðanna. En Selfyssingar reyndust sterkari aðilinn á endasprettinum og Aron Leo Guðmundsson tryggði svo Selfyssingum sigur með marki í blálokin. Lokatölur 33-32. Hjá Selfoss 2 voru Aron Leo Guðmundsson og Skarphéðinn Sveinsson markahæstir með 8 mörk. Garðar Freyr Bergsson varði 13 skot. Hjá Fram 2 var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 10 mörk. Jóhann Ágústsson varði 14 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.