Nicolej Krickau, þjálfari þýska stórliðsins Füchse Berlin, segir að stórleikur liðsins gegn toppliði THW Kiel í þýsku Bundesligunni í dag geti haft mikil áhrif á framhaldið í toppbaráttunni. Berlínarliðið er í 5. sæti deildarinnar og hefur ekki efni á að tapa fleiri stigum ætli það sér að berjast um þýska meistaratitilinn. Füchse Berlin tekur á móti Kiel í Max-Schmeling-Halle í dag klukkan 15:55. Krickau viðurkennir að mikið sé undir hjá lærisveinum sínum enda gæti bilið á milli liðanna orðið verulegt með sigri Kiel. „Ef við töpum gæti það haft afgerandi áhrif á framhaldið. Þá verður bilið upp í Kiel orðið mjög stórt,“ sagði Krickau í samtali við þýska fjölmiðla. Tap myndi þýða að Füchse Berlin væri komið með fimm fleiri tapstig en Kiel og því gæti reynst erfitt að vinna upp forskot toppliðsins á næstu mánuðum. Krickau ber mikla virðingu fyrir Kiel og segir liðið hafa tekið miklum framförum frá síðustu leiktíð. Hann bendir sérstaklega á aukinn hraða, meiri fjölbreytni í sóknarleiknum og stöðugri frammistöðu. „Þeir spila allt öðruvísi en á síðustu leiktíð. Miklu hraðar, með meiri fjölbreytni og meiri stöðugleika,“ sagði Krickau. Füchse Berlin hefur unnið síðustu fjórar viðureignir liðanna en Krickau telur að sú tölfræði skipti litlu máli nú. Kiel hefur fengið nýjan þjálfara, Börge Lund, og leikmannahópurinn tekið breytingum. Krickau bendir jafnframt á að Kiel leiki ekki í Evrópukeppni á þessu tímabili og hafi því meira svigrúm til að undirbúa sig fyrir leiki í þýsku úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir það sé félagið með breiðan og sterkan leikmannahóp. Matthes Langhoff, leikmaður Füchse Berlin, tekur undir með þjálfara sínum og segir að sérstaklega þurfi að hafa gætur á Slóvenanum Domen Makuc, leikstjórnanda Kiel. Makuc lék áður með Barcelona og gerði Berlínarliðinu lífið leitt í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á síðustu leiktíð. „Makuc er í frábæru formi, stjórnar leiknum mjög vel og býr yfir sköpunargáfu sem maður sér sjaldan,“ sagði Langhoff. Berlínarliðið kemur til leiks eftir öruggan 42–30 sigur gegn Potsdam í þýsku bikarkeppninni í vikunni þar sem Mathias Gidsel skoraði þrettán mörk. Kiel þurfti hins vegar að hafa verulega fyrir 35–34 útisigri gegn Lemgo í sömu keppni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.