Ákvörðun danska handknattleikssambandsins um að velja Herning sem gestgjafaborg fyrir stórmót í handbolta árin 2030, 2031 og 2032 hefur vakið óánægju í Kaupmannahöfn. Borgaryfirvöld höfðu lagt fram fjársterkt tilboð í von um að fá mótin til höfuðborgarinnar en urðu undir í samkeppninni við Herning. Christopher Røhl, framkvæmdarstjóri menningar-, frístunda- og borgaraþjónustumála í Kaupmannahöfn, segist afar ósáttur við að höfuðborgin hafi ekki verið valin sem gestgjafi úrslitakeppni stórmótanna árin 2031 og 2032. Danska handknattleikssambandið tilkynnti á mánudag að Herning hefði orðið fyrir valinu sem gestgjafaborg fyrir mótin þrjú. Kaupmannahöfn hafði lagt fram tilboð upp á margar milljónir í von um að fá stórmótin til austurhluta Danmerkur. Í samtali við TV 2 SPORT segir Røhl að ákvörðunin sé mikil vonbrigði fyrir handboltaáhugafólk í Kaupmannahöfn og á austurhluta landsins. Hann telur að borgin hafi misst af mikilvægu tækifæri til að skapa mikla handboltahátíð sem hefði náð langt út fyrir sjálfa keppnishöllina. „Því miður þýðir þetta að handboltafélögin okkar, íbúar Kaupmannahafnar og aðrir íbúar á austurhluta Danmerkur fá ekki sama aðgang að leikjunum og við hefðum viljað,“ sagði Røhl. Hann segir að stórmót af þessu tagi snúist ekki eingöngu um það sem gerist inni á vellinum heldur einnig um stemninguna í borginni. „Þjóðhátíðin, möguleikinn á að færa stemninguna út úr höllinni og inn í borgina, að handboltafélögin okkar gætu sett upp risaskjái og tekið þátt í stemningunni í kringum leikina – allt þetta verður ekki með sama hætti þegar leikirnir fara ekki fram í Kaupmannahöfn.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.