Opinn fyrir því að snúa aftur til Íslands í nánustu framtíð
Flensborg

Lettinn Endijs Kušners sem lék með Herði á Ísafirði frá árunum 2021 til 2026 leikur í dag með þýska 3. deildarliðinu DHK Flensborg.

Þangað fór hann frá Ísafirði en Endijs kom til Ísafjarðar árið 2021 og lék með þeim í 6 tímabil. Hjá Herði spilaði hann 95 leiki og skoraði 473 mörk. Eitt tímabilið var Hörður í Olís deildinni en hin 5 tímabilin voru þeir í Grill 66 deildinni.

Endijs er einnig fastamaður í Lettneska landsliðinu. Hefur hann spilað 11 A-landsleiki fyrir Lettland og skorað í þeim 36 mörk. Hann er 23 ára gamall og getur leyst allar stöður fyrir utan.

Handkastið heyrði í Endijs og fékk hann til að tjá sig um tímann á Ísafirði, nýja liðið í Þýskalandi og sitthvað fleira.

"Það var stór partur af lífi mínu þessi 6 ár á Ísafirði að spila fyrir Hörð og ég á margar frábærar minningar þaðan. Ísland gaf mér mjög mikið, bæði sem leikmann og sem persónu. Ég sé ekki eftir neinu á tíma mínum á Ísafirði og á Íslandi. Er fyrst og fremst bara þakklátur fyrir allt fólkið sem ég kynntist og allt sem ég lærði"

"Ég er mjög ánægður hér í Þýskalandi hjá Flensborg. Ég nýt þess að búa í þessari borg og líður vel í þessu liði og umhverfi sem það hefur upp á að bjóða. Þessa fyrstu 3 mánuði hef ég aðlagast liðinu og lífinu hér mjög vel. Allt hefur gengið vel og ég nýt þessa nýja kafla í mínu lífi. Ég hlakka til að halda áfram að leggja hart að mér, bæta mig sem leikmann og hjálpa liðinu eins mikið og ég get"

"Hvað varðar lettneska landsliðið sem ég er í þá spiluðum við um daginn við Pólland og Frakkland. Því miður þá töpuðum við báðum leikjunum, en það er samt sem áður alltaf gaman að spila við lið í þessum gæðaflokki og máta sig við þau. Þetta eru þannig leikir að þú getur lært helling á því, öðlast dýrmæta reynslu og og sérð hvar þú stendur. Auðvitað viltu alltaf vinna en í þessum tilvikum að þá hjálpar það okkur að bæta okkur sem lið að spila við svona mótherja"

"Ég er svo sannarlega opinn fyrir því að snúa aftur til Íslands í nánustu framtíð og þá einna helst til að spila í Olís deildinni. Ég er ennþá ungur og á nóg eftir. Satt best að segja var ég mjög nálægt því að semja við eitt lið í Olís deildinni síðastliðið sumar en þá kom upp möguleikinn að fara til Þýskalands og ég ákvað að taka því og prófa eitthvað alveg nýtt. En að spila aftur á Íslandi er klárlega eitthvað sem ég sé mig fyrir að gera í framtíðinni" sagði þessi hraði og útsjónarsami leikstjórnandi að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top