Thea Imani Sturludóttir var markahæst á vellinum með átta mörk þegar SCM Craiova vann Targu Jiu, 28–22, á heimavelli í rúmensku úrvalsdeildinni í gær. Thea nýtti átta af tíu skotum sínum í leiknum. Craiova lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimakonur komust í 5–1 og náðu mest ellefu marka forskoti, 16–5, áður en gestirnir minnkuðu muninn í 16–6 fyrir hálfleik. Targu Jiu náði að saxa á forskotið í síðari hálfleik en sigur Craiova var öruggur og að lokum munaði sex mörkum á liðunum. Craiova er í þriðja sæti deildarinnar með 15 stig eftir sigurinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.