Aleš Pajovič, þjálfari þýska stórliðsins Flensburg-Handewitt, viðurkennir að enn ríki óvissa um framtíð hans hjá félaginu. Samningur Slóvenans rennur út sumarið 2027 og þrátt fyrir að hann vilji sjálfur halda áfram hefur ekki verið tekin ákvörðun um framhaldið. Þetta kom fram í aðdraganda stórleiks Flensburg gegn Magdeburg í þýsku Bundesligunni í gær, þar sem Flensburg mátti þola átta marka tap 37–29. Ómar Ingi fór á kostum er Magdeburg valtaði yfir Flensburg Pajovič tók við þjálfun Flensburg á síðustu leiktíð og hefur náð góðum árangri með liðið. Þrátt fyrir það er ekki ljóst hvort forráðamenn félagsins hyggist framlengja samning hans. Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og sérfræðingur hjá Dyn, ræddi stöðu Pajovič fyrir leikinn gegn Magdeburg. Kretzschmar benti á að sigur gegn ríkjandi Þýskalandsmeisturum myndi styrkja samningsstöðu Slóvenans verulega. „Ef Aleš vinnur í Magdeburg í dag verða ekki mörg rök eftir gegn því að framlengja samning hans,“ sagði Kretzschmar. Pajovič staðfesti sjálfur í samtali við Dyn að hann hefði áhuga á að halda áfram hjá Flensburg en að enn væri spurningamerki yfir framtíðinni. „Hvað framtíð mína varðar er spurningamerkið enn til staðar,“ sagði Pajovič. Pajovič hlaut Golden Whistle-verðlaunin árið 2026 en verðlaunin voru tilkynnt á föstudaginn. Verðlaunin eru veitt þjálfara sem þykir skara fram úr í framkomu og samskiptum við dómara. Þýskir úrvalsdómarar standa að valinu og þótti Pajovič sérstaklega yfirvegaður og sýna mikla virðingu í samskiptum við dómara. Flensburg hefur verið í toppbaráttu Bundesligunnar á tímabilinu en fékk heldur betur að kenna á því gegn Magdeburg í gær. Magdeburg hafði sex marka forskot í hálfleik, 20–14, og vann að lokum 37–29. Ómar Ingi Magnússon fór á kostum í liði heimamanna og skoraði 14 mörk. Tapið þýðir að Flensburg missti af tækifærinu til að komast á topp deildarinnar en Magdeburg tók toppsætið með sigrinum. Arnar Freyr Arnarsson leikur með Flensburg en samningur hans rennur út næsta sumar. Viggó Kristjánsson gengur í raðir félagsins næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.