Reynir Þór Stefánsson og liðsfélagar hans í MT Melsungen mæta þýska stórliðinu THW Kiel í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar. Dregið var í næstu umferð keppninnar um helgina eftir stórleik Magdeburg og Flensburg í þýsku Bundesligunni. Melsungen fær heimaleik gegn Kiel en viðureignin fer fram annaðhvort 16. eða 17. desember. Aðeins nokkrum dögum síðar, þann 19. desember, mætast liðin aftur í þýsku úrvalsdeildinni, þá á heimavelli Kiel. Það er því ljóst að Reynir Þór og félagar fá tvö stór verkefni gegn Kiel á örfáum dögum rétt fyrir jól. Melsungen hefur verið gríðarlega sterkt á heimavelli á tímabilinu og er enn taplaust þar í öllum keppnum. Liðið hefur meðal annars lagt Magdeburg að velli í deildinni og verður því ekki auðveldur andstæðingur fyrir Kiel. Viktor Szilágyi, framkvæmdastjóri Kiel, var ekki sérstaklega ánægður með niðurstöðu dráttarins enda hefur Kiel ekki fengið heimaleik í bikarkeppninni í langan tíma. „Við höfum vonast eftir heimaleik í hverjum bikardrætti undanfarin tvö ár. Því miður varð það ekki raunin nú heldur,“ sagði Szilágyi í samtali við heimasíðu Kiel. Hann sagði jafnframt að Melsungen væri einn erfiðasti útivallarandstæðingur sem Kiel hefði getað fengið. Magdeburg, lið íslensku landsliðsmannanna Gísla Þorgeirs Kristjánssonar, Ómars Inga Magnússonar og Elvars Arnar Jónssonar fékk hins vegar á pappírnum mun auðveldara verkefni. Magdeburg mætir VfL Eintracht Hagen, eina liðinu úr næstefstu deild sem eftir er í keppninni. Leikurinn fer fram á heimavelli Hagen. Það var þýski ólympíumeistarinn í sundi, Lukas Märtens sem dró liðin saman. Märtens er fæddur í Magdeburg og vakti drátturinn mikla ánægju meðal stuðningsmanna félagsins sem fylgdust með í GETEC-höllinni. Gísli Þorgeir Kristjánsson var þó fljótur að vara við því að vanmeta Hagen. „Þetta verður spennandi. Allt getur gerst í bikarnum og ég mun ekki vanmeta Hagen. Þeir eru ekki komnir þangað að ástæðulausu. Við munum taka þetta af fullri alvöru,“ sagði Gísli í samtali við Sport Bild. Flensburg, lið Arnars Freys Arnarssonar fær heimaleik gegn Göppingen þar sem Ýmir Örn Gíslason leikur. Fjórða viðureignin verður á milli HC Erlangen og ríkjandi bikarmeistara Füchse Berlin. Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson fá því verðugt verkefni gegn ríkjandi meisturum keppninnar. Sigurliðin fjögur tryggja sér sæti í Final Four-úrslitahelginni sem fer fram í Köln dagana 10.–11. apríl 2027. Átta liða úrslit þýska bikarsins:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.