Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis. Stiven Tobar farinn að æfa með Valsmönnum en fær hann samning? Valur farnir til Evrópu og FH einnig í eldlínunni í vikunni. Bræðurnir skildu jafnir og fóru heim með sitthvort stigið. ÍR eru svo gott sem komnir upp úr Grill 66 deildinni eins og Afturelding kvenna megin. Mun frammistaða Björgvins Páls í deildinni skipta einhverju máli um valið í lokahóp landsliðsins í desember? Natasja Hammer mætti á völlinn 15 dögum eftir fæðingu. HK með risa sigur gegn Gróttu. Bikarkeppnin fer af stað hjá stelpunum í vikunni en Haukar og Valur sitja hjá. Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.