Verst geymda leyndarmál handboltans að raungerast
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Stiven Tobar Valencia sást í myndbandi sem Valur birti á samfélagsmiðlum sínum þegar karlalið félagsins hélt af stað í Evrópuferð sína í gær. Valsmenn eiga tvo útileiki fram undan í Evrópukeppni og koma ekki heim á milli leikja.

Málið var rætt í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Sérfræðingurinn sagði myndbandið renna stoðum undir upplýsingar um að Stiven væri farinn að æfa með Val. Stiven er enn án félags eftir að samningur hans við Benfica rann út í sumar.

„Við vorum búnir að heyra af því að hann væri byrjaður að mæta á æfingar hjá þeim en þetta var staðfestingin á því, því ég veit að Valsliðið æfði áður en liðið hélt upp á flugvöll,“ sagði Sérfræðingurinn.

Hann rifjaði jafnframt upp viðtal Stivens við Handkastið þar sem hann hafði látið gamminn geisa. Stiven fór í axlaraðgerð í sumar og hefur verið frá keppni síðan þá.

„Það er greinilega búið að sættast eftir að Stiven Tobar kom í viðtal við Handkastið og lét gamminn geisa.“

Stiven segir Val hafa skilið sig eftir í myrkrinu

Kristinn Björgúlfsson taldi að endurkoma Stivens yrði mikilvæg viðbót fyrir Valsliðið.

„Þetta styrkir Valsmenn sérstaklega varnarlega. Nú er sennilega lélegasta leyndarmál handboltans í ár að verða opinbert,“ sagði Kristinn. Samkvæmt því sem Sérfræðingurinn hefur heyrt er þó ekki sjálfgefið að Stiven skrifi undir samning við Val á næstunni. Möguleikinn á að komast aftur í atvinnumennsku sé enn til skoðunar.

„Ég hef reyndar heyrt að hann semji ekkert við Val fyrr en hann verður orðinn leikfær. Hann er ennþá að skoða þann möguleika að geta farið út eftir áramót ef eitthvað gerist, ef einhver leikmaður meiðist á HM eða eitthvað þannig,“ sagði Sérfræðingurinn.

Uppfært:

Strax eftir þáttinn tilkynnti Valur að Stiven Tobar Valencia hafi samið við félagið.

Stiven semur við Val

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top