Haukur glímir við meiðsli – Þátttaka hans á HM í hættu?
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

Hnémeiðsli Hauks Þrastarsonar voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins. Þar lýsti Kristinn Björgúlfsson áhyggjum af stöðu landsliðsmannsins sem hefur að hans sögn þurft á sprautum að halda til að halda verkjum niðri í hné.

Í umræðunni kom fram að Haukur hefði farið í tvær sprautur í hné fyrir síðasta landsliðsverkefni og ætti að fara í þá þriðju í gær. Veltu þáttastjórnendur því fyrir sér hvaða áhrif staðan gæti haft á framhaldið hjá honum og landsliðinu.

„Hann hefur verið að spila og hefur verið að reyna að halda verkjunum niðri með því að fara í sprautur en það er spurning hversu lengi þetta getur haldið áfram. Verður hann klár í alvöru álag á stórmóti? Þetta eru ekki góðar fréttir, fyrst og fremst fyrir hann og síðan fyrir landsliðið,“ sagði Kristinn Björgúlfsson.

Þá kom fram að menn hefðu ekki verið fyllilega sáttir við frammistöðu Hauks í síðasta landsliðsverkefni. Áhyggjurnar snerust þó fyrst og fremst að líkamlegu ástandi hans og því hvort hnéð þyldi álagið sem fylgir stórmóti. Stymmi klippari benti á að Haukur þyrfti að huga að eigin heilsu og skyldum sínum við félagslið sitt, Rhein-Neckar Löwen.

„Drengirnir okkar hafa verið þekktir fyrir að fórna limum fyrir landsliðið en síðan er spurning hvort hann verði að fara skynsamur. Rhein-Neckar Löwen borgar launin og hann verður ekki ríkur á dagpeningunum frá HSÍ,“ sagði Stymmi.

Kristinn minnti jafnframt á að framtíð Hauks hjá þýska félaginu hefði verið í umræðunni.

„Síðan voru fréttir á dögunum um klásúluna sem hann er með í samningnum sínum hjá Löwen og hann gæti farið í sumar,“ bætti Kristinn við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top