Stiven Tobar Valencia hefur gert samning við handknattleiksdeild Vals. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðla síðu sinni. Stiven kemur heim í Val og gengur í raðir félagsins eftir að hafa leikið með Benfica í Portúgal síðustu ár. Stiven fór í aðgerð á öxl í sumar og hefur verið endurhæfingu eftir þá aðgerð síðustu mánuði. Stiven segir Val hafa skilið sig eftir í myrkrinu ,,Hann hefur sýnt mikinn dugnað í að koma til baka inná völlinn sem fyrst og hefur æft með liðinu síðustu vikur. Hann er því núna klár í slaginn," segir í tilkynningunni frá Val. ,,Stiven er öllum hnútum kunnugur að Hlíðarenda enda ólst hann upp hjá okkur og spilaði upp alla yngri flokka félagsins. Stiven mun koma inní hópinn bæði sem frábær leikmaður en ekki síst sem öflugur karakter." ,,Við hjá Val erum alltaf ótrúlega stolt af því þegar uppaldir leikmenn velja að koma aftur heim í Val," segir enn fremur. Í viðtali við Handkastið í lok ágúst leit ekki út fyrir að Stiven myndi ganga í raðir Vals. Þar sagði Stiven segir að Valur hafi verið eini raunverulegi kosturinn í hans huga þegar hann yfirgaf Benfica. Hann er uppalinn hjá Val og vildi snúa aftur heim eftir árin erlendis. „Það sem hefur verið upp á borði hjá mér er uppeldisfélagið mitt, Valur. Það hefur gengið brösulega og ég veit ekki hvort það sé vegna fjárhagsvandræðanna hjá Val," sagði Stiven í lok ágúst. „Ég er mjög ósáttur með það hvernig Valur hefur tekið á móti mér síðustu vikur. Það kom ekkert annað til greina hjá mér til að byrja með en að koma heim í Val og spila fyrir mitt uppeldisfélag. Ég lét þá vita strax að ég væri tilbúinn að koma heim og spila fyrir Val.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.