Tjörvi Týr verður ekki með Val í Ungverjalandi í kvöld
Sævar Jónasson

Tjörvi Týr Gíslason, leikmaður Vals, verður ekki með liðinu þegar það mætir ungverska liðinu Tatabánya á útivelli í Evrópudeild karla í kvöld.

Ástæðan er sú að Tjörvi Týr á von á barni og varð hann því eftir heima á Íslandi á meðan liðsfélagar hans héldu til Ungverjalands.

Þetta staðfesti Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, í samtali við Handkastið fyrir leikinn í kvöld.

„Strákarnir eru í góðum gír og eru tilbúnir og spenntir fyrir leiknum. Tjörvi Týr gat ekki komið með okkur þar sem hann á von á barni og hann var því eftir heima en aðrir eru tilbúnir í verkefnið,“ sagði Ágúst.

Fjarvera Tjörva Týs þýðir að Valsmenn þurfa að gera breytingar á leikmannahópnum fyrir erfiðan útileik gegn Tatabánya.

Ungverska liðið hefur styrkst frá því liðin mættust á Hlíðarenda en samkvæmt Ágústi hefur aðalskytta liðsins, Bodo, snúið aftur auk þess sem reynslumikill línumaður hefur bæst í hópinn.

Ágúst segir að undirbúningur Vals hafi gengið vel og að leikmenn liðsins séu tilbúnir í verkefnið þrátt fyrir fjarveru Tjörva Týs. Viðtal við Ágúst Jóhannsson birtist á Handkastinu síðar í dag.

Valsmenn æfðu í keppnishöllinni í Ungverjalandi í gær og segir Ágúst að aðstæður séu afar góðar. Hann telur að agaður sóknarleikur og sterkur varnarleikur verði lykilatriði ætli Valur sér að ná hagstæðum úrslitum í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top