Það mætti þess vegna pakka Björgvini inn í plast
Egill Bjarni Friðjónsson

Kristinn Björgúlfsson og Stymmi klippari telja sæti Björgvins Páls Gústavssonar í lokahópi íslenska landsliðsins í janúar tryggt, óháð frammistöðu hans með Val fram að áramótum. Þetta kom fram í umræðu í nýjasta þætti Handkastsins.

Sérfræðingurinn spurði hvort frammistaða Björgvins Páls í síðustu leikjum Vals fyrir áramót gæti haft áhrif á landsliðsvalið.

„Mun það skipta einhverju máli hvernig Björgvin Páll stendur sig í þessum síðustu leikjum Vals fyrir áramót? Hann verður alltaf í lokahópi í janúar?“

Kristinn Björgúlfsson var afdráttarlaus í svari sínu. „Það mun ekki skipta neinu máli. Hann verður alltaf í lokahópnum.“

Stymmi klippari tók undir það og taldi mikilvægast að Björgvin kæmist heill í gegnum næstu vikur.

„Ég er sammála því, það mætti þess vegna pakka honum inn í plast og geyma hann og passa að hann meiðist ekki.“

Sérfræðingurinn gekk þá á félaga sína og benti á frammistöðu Jóns Þórarins Reynissonar, markvarðar FH, að undanförnu.

„Sama hvað? Þó að hann detti bara í 10% markvörslu í einhverjum leikjum? Jón Þórarinn hefur til að mynda verið í liði umferðarinnar hér á Handkastinu í síðustu tveimur umferðum.“

Stymmi taldi reynslu Björgvins Páls með landsliðinu vega þyngra.

„Það skiptir engu máli. Jón Þórarinn hefur ekki sýnt þessa frammistöðu með landsliðinu.“

Kristinn sagði umræðuna fyrst og fremst snúast um hvaða markvörð landsliðið þyrfti að hafa til taks á eftir Viktori Gísla Hallgrímssyni.

„Þetta snýst meira um það að við þurfum að huga að því að Viktor Gísli er og verður okkar fyrsti markvörður næstu tólf árin. Ef eitthvað klikkar þá viltu ekki hafa nýliða inni á sem hefur ekki spilað marga landsleiki,“ sagði Kristinn.

Nánar var rætt um markvarðastöðu landsliðsins í nýjasta þætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top