Haukar drógust gegn slóvakíska liðinu HC DAC Dunajská Streda í 16-liða úrslitum Evrópubikars kvenna en dregið var í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu (EHF) í Vínarborg í dag. Slóvakíska liðið er á toppi sameiginlegrar úrvalsdeildar Slóvakíu og Tékklands. Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitunum með því að leggja RK Levalea 2010 Nikšić frá Svartfjallalandi að velli í síðustu umferð keppninnar. Næsti andstæðingur Hauka, HC DAC Dunajská Streda, leikur í sameiginlegri efstu deild Slóvakíu og Tékklands, Doprastav liga, þar sem liðið er á toppi deildarinnar eftir tíu leiki. Slóvakíska liðið hefur unnið níu af fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu og aðeins tapað einum. Það er því ljóst að verðugt verkefni bíður Hauka í 16-liða úrslitum keppninnar. HC DAC Dunajská Streda hafði betur gegn hollenska liðinu JuRo Unirek VZV í síðustu umferð Evrópubikarsins. Slóvakíska liðið vann fyrri leikinn 35-26 og þann síðari 42-32 og fór því áfram með samtals 19 marka mun. Leikið verður helgina 9.-10. janúar og 16.-17.janúar en samkvæmt drættinum eiga Haukar að hefja viðureignina á útivelli. Það getur hinsvegar vel farið svo að liðin leiki báða leikina sömu helgi eins og tíðkast í keppninni. Alls eru 16 lið frá 13 þjóðum eftir í Evrópubikarnum. Slóvakía á flest lið eftir í keppninni, eða þrjú, en Serbía á tvö lið. Athygli vekur að tvö slóvakísk lið, HK Slovan Duslo Šaľa og MŠK Iuventa Michalovce, drógust saman. Iuventa Michalovce komst alla leið í úrslit keppninnar á síðasta tímabili. Átta liða úrslitin fara fram í febrúar, undanúrslitin í mars og úrslitaleikirnir í maí.Drátturinn í 16-liða úrslitum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.