FH vann góðan fimm marka útisigur á Stjörnunni, 30-25, þegar liðin mættust í Heklu Höllinni í Olís-deild karla í dag. FH-ingar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 17-15. Stjörnumenn voru án þeirra Ísaks Loga Einarssonar, sem tekur út tveggja leikja leikbann, og Bjarka Jóhannssonar, sem er á láni frá FH og hafði því ekki leikheimild gegn sínu gamla félagi. Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti og komust í 5-1 eftir rúmlega sex mínútna leik. Stjörnumenn leiddu 8-5 þegar ellefu mínútur voru liðnar en þá skoruðu FH-ingar fimm mörk í röð og komust yfir, 10-8. FH náði fjögurra marka forskoti, 16-12, undir lok fyrri hálfleiks en Stjörnumenn svöruðu með þremur mörkum í röð. Simon Michael Guðjónsson átti síðasta mark fyrri hálfleiks og sá til þess að FH leiddi 17-15 í leikhléi. FH-ingar komust fjórum mörkum yfir í upphafi síðari hálfleiks, 21-17, en Stjörnumenn minnkuðu muninn í eitt mark með þremur mörkum í röð, 21-20. Þá tók Brynjar Narfi Arndal til sinna ráða og skoraði þrjú mörk í röð fyrir FH. Gestirnir juku forskot sitt í sex mörk, 27-21, þegar rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. Stjörnumönnum tókst ekki að vinna sig aftur inn í leikinn og FH-ingar fögnuðu að lokum fimm marka sigri, 30-25. Markverðir beggja liða áttu góðan leik en Sigurður Dan Óskarsson varði 17 skot í marki Stjörnunnar auk þess að skora eitt mark. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 14 skot í marki FH. Brynjar Narfi Arndal var markahæstur FH-inga með sjö mörk, Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði sex og Ágúst Guðmundsson fimm. Jóel Bernburg var markahæstur Stjörnumanna með fimm mörk en þeir Dagur Sverrir Kristjánsson og Gauti Gunnarsson skoruðu fjögur mörk hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.