Okkur langar að byggja upp öflugt yngri flokka starf á Suðurnesjum
Facebook

Víðismenn frá Garði eru að leika í fyrsta skipti í næstefstu deild eftir að hafa verið í 2. deildinni frá stofnun félagsins haustið 2022.

Mikill uppgangur og gróska er hjá félaginu og hafa Víðismenn hafa sigrað 2 leiki af 10 það sem af lifir móti og sitja í 10. sæti af 12 liðum. Frábært að sjá handboltalið á Suðurnesjum vaxa og dafna.

Handkastið heyrði í Andra Þorleifssyni sem er formaður Handknattleiksdeildar Víðis og um leið aðstoðarþjálfari Elzbieta Kowal sem er aðalþjálfari liðsins. Við fengum Andra til að segja okkur aðeins frá starfinu. Hann kom meðal annars inn á það að þeim langar að byggja upp öflugt yngri flokka starf á Suðurnesjum.

"Deildin var stofnuð haustið 2022 að frumkvæði Orfeusar Andreou. Við erum nokkur sem höldum þessu gangandi saman og hefur starfið vaxið jafnt og þétt. Í vor enduðum við í öðru sæti í 2. deild með 20 stig eftir tíu sigra í fjórtán leikjum og fórum upp í Grill 66 deildina. Við vorum með þrjá sigra um áramót en tókum fjórtán stig af sextán mögulegum eftir áramót. Það var virkilega gaman að sjá liðið taka svona stórt skref á seinni hluta tímabilsins."

"Það er mjög gaman að vera kominn í Grillið. Munurinn á deildunum finnst mér helst liggja í því hvað okkur er refsað hratt fyrir mistök. Við höfum átt kafla þar sem við höfum staðið vel í sterkum liðum og verkefnið núna er að halda þeim leik lengur. Elzbieta Kowal stýrir liðinu og ég er henni til aðstoðar. Við erum með góðan kjarna og blöndu af heimamönnum og leikmönnum sem hafa komið til okkar erlendis frá. Markmiðið í vetur er að festa okkur í sessi í deildinni."

"Til lengri tíma langar okkur að byggja upp öflugt yngri flokka starf svo krakkar á Suðurnesjum geti kynnst handboltanum og átt sér lið hér heima til að fylgjast með. Við höfum meðal annars staðið fyrir handboltaskóla í haust og viljum halda áfram að bjóða krökkum að prófa. Svo skiptir stuðningurinn úr samfélaginu miklu máli, bæði fólkið sem mætir á leiki og þau sem hjálpa okkur að halda starfinu gangandi," sagði formaður handknattleiksdeildar Víðis, Andri Þorleifsson að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top