Það var tilfinningaþrungin stund hjá norsku handboltakonunni Camillu Herrem þegar Sola lék sinn síðasta heimaleik í norsku úrvalsdeildinni undir stjórn eiginmanns hennar, Steffen Stegavik, á laugardaginn. Stegavik tekur við þjálfun danska stórliðsins Odense um áramótin. Camilla Herrem átti erfitt með að halda aftur af tárunum eftir leikinn þegar hún ræddi um mikilvægi eiginmanns síns fyrir félagið. Steffen Stegavik lætur af störfum hjá Sola og tekur við þjálfun Odense þann 1. janúar 2027. Kveðjustundin á heimavelli í deildinni fór þó ekki eins og ríkjandi Noregsmeistarar hefðu óskað sér. Molde vann sannfærandi 33–26 útisigur á Sola eftir að hafa leitt með fimm mörkum í hálfleik, 19–14. Lene Tveiten var markahæst í leiknum með sjö mörk fyrir Molde. Með sigrinum fór Molde upp í annað sæti norsku úrvalsdeildarinnar en Sola situr í fjórða sæti, einu stigi á eftir Molde og á leik til góða. Eftir leikinn voru það þó ekki aðeins úrslitin sem sátu í Herrem heldur einnig sú staðreynd að tíma eiginmanns hennar sem þjálfara Sola væri að ljúka. „Ég held að allir muni sakna Steffen. Hann er einstakur einstaklingur sem sér alla. Það er það sem gerir hann svo sérstakan,“ sagði Herrem í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV 2. Þrátt fyrir að Stegavik hafi stýrt Sola í síðasta sinn á heimavelli í deildinni er verkefnum hans hjá félaginu ekki alveg lokið. Hann mun stýra liðinu í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar í desember áður en nýr kafli tekur við á þjálfaraferli hans hjá Odense í Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.