FH-ingar töpuðu fyrir Bidasoa Irun í Kaplakrika
Egill Bjarni Friðjónsson

FH mátti sætta sig við fimm marka tap gegn spænska liðinu Bidasoa Irun í Evrópudeild karla í handknattleik í Kaplakrika í kvöld. Leiknum lauk með 35-40 sigri gestanna eftir að staðan hafði verið 15-19 í hálfleik.

Spánverjarnir höfðu betur í fyrri hálfleik og leiddu með fjórum mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, 15-19.

Sóknarleikur FH-inga gekk betur í síðari hálfleik en Hafnfirðingar skoruðu 20 mörk á síðustu 30 mínútunum. Varnarleikurinn gekk hins vegar ekki sem skyldi og skoruðu gestirnir 21 mark í síðari hálfleik. Niðurstaðan varð því fimm marka sigur spænska liðsins, 35-40.

Ágúst Guðmundsson og Brynjar Narfi Arndal voru markahæstir í liði FH með átta mörk hvor. Ómar Darri Sigurgeirsson kom næstur með sjö mörk en þeir þrír skoruðu samtals 23 af 35 mörkum Hafnfirðinga í leiknum.

Hjá gestunum var Miguel Ángel Martín Duque markahæstur með níu mörk. Esteban Salinas skoraði sex mörk og Xavier González kom næstur með fjögur mörk.

Markaskorarar FH: Ágúst Guðmundsson 8, Brynjar Narfi Arndal 8, Ómar Darri Sigurgeirsson 7, Eiður Rafn Valsson 3, Jón Bjarni Ólafsson 2, Einar Rafn Eiðsson 2, Símon Michael Guðjónsson 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Antoine Óskar Pantano 1 og Einar Örn Sindrason 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top