Íhugaði að hætta en flutti til Íslands – Sló í gegn og er nú á leið á EM
SVEN SIMON /AFP

Sænska landsliðskonan Emma Olsson er á leið á sitt fyrsta stórmót með sænska landsliðinu þegar Evrópumótið hefst í næstu viku. Leið hennar þangað hefur þó verið allt annað en greið en Emma íhugaði á sínum tíma að leggja skóna á hilluna áður en hún gekk í raðir Fram í Olís-deild kvenna árið 2021. Þar sló hún rækilega í gegn og kom ferlinum aftur á beinu brautina.

Þar skoraði Emma 73 mörk í 20 leikjum fyrir Fram í Olís-deildinni og lék bæði sem línumaður og sem skytta en í dag er hún línumaður.

Emma Olsson, sem er 29 ára gömul leikur í dag með þýska stórliðinu Borussia Dortmund en hún hefur verið á mála hjá félaginu frá sumrinu 2022. Áður en hún hélt til Þýskalands lék hún eitt tímabil með Fram hér á landi og varð meðal annars bikarmeistari með Fram.

Í viðtali við sænska handboltafréttamiðilinn Handbollskanalen rifjar Emma upp erfiðan kafla á ferlinum þegar hún lék með Önnered í sænsku úrvalsdeildinni. Þar náði hún sér ekki á strik og fékk ekki framlengingu á samningi sínum eftir aðeins eitt tímabil hjá félaginu.

„Ég fékk ekkert sérstaklega stórt hlutverk hjá Önnered og mér fannst félagið ekki hafa mikinn áhuga á að breyta því. Ég hafði þá samband við umboðsmann í fyrsta skipti vegna þess að ég var farin að íhuga að hætta. Á sama tíma fannst mér ég enn eiga ótrúlega mikið eftir að gefa,“ segir Emma í samtali við Handbollskanalen. Emma segir að hún hafi á þessum tíma óttast að ekkert félag hefði áhuga á að fá hana til liðs við sig. Hún hafi þó aldrei misst löngunina til að ná lengra í handboltanum og því ákveðið að leita annarra leiða.

Sú ákvörðun reyndist afdrifarík því umboðsmaður hennar hafði sambönd á Íslandi og í kjölfarið gekk Emma til liðs við Fram sumarið 2021.

„Hann var með sambönd á Íslandi og ég fann strax að þangað vildi ég fara, líka af persónulegum ástæðum,“ segir Emma.

Hjá Fram fékk sænski línumaðurinn tækifæri til að sýna hvað í henni bjó. Hún varð fljótt einn af lykilmönnum liðsins og vakti athygli fyrir frammistöðu sína í Olís-deild kvenna. Emma lék stórt hlutverk í liði Fram sem varð bikarmeistari vorið 2022 og frammistaða hennar hér á landi vakti áhuga erlendra félaga.

Þórir Tryggvason

Það var síðan þýska stórliðið Borussia Dortmund sem tryggði sér þjónustu hennar eftir aðeins eitt tímabil á Íslandi. Emma viðurkennir að hún hafi sjálf átt erfitt með að trúa því hversu hratt hlutirnir höfðu breyst.

„Það var auðvitað alveg ótrúlegt að Dortmund skyldi sýna mér áhuga. Ég hafði í upphafi búist við því að sitja mikið á varamannabekknum þar,“ segir Emma.

Annað kom hins vegar á daginn og hefur Emma verið hjá Dortmund allar götur síðan. Nú, rúmum fjórum árum eftir að hún yfirgaf Fram, er hún komin í sænska landsliðshópinn fyrir Evrópumótið.

Leiðin á Evrópumótið hefur þó ekki verið áfallalaus. Emma hefur glímt við lærmeiðsli í haust og verið frá keppni í tíu vikur. Þrátt fyrir það ákvað Tomas Axnér, landsliðsþjálfari Svía, að velja hana í hópinn. Emma hefur aldrei áður tekið þátt í stórmóti með sænska landsliðinu og á heldur enga leiki að baki með yngri landsliðum þjóðarinnar.

„Emma er frábær manneskja innan hópsins sem leggur mjög mikið af mörkum. Sú vegferð sem hún hefur farið, úr því að vera í frekar litlu hlutverki yfir í að berjast fyrir sæti í landsliðinu, sýnir ótrúlegan drifkraft og járnvilja, en einnig auðmýkt eftir alla erfiðleikana. En hún er valin vegna þess að hún er góður handboltamaður. Það er aðalatriðið,“ sagði Axnér þegar hann kynnti EM-hópinn.

Emma er ein sex leikmanna í sænska hópnum sem eru á leið á sitt fyrsta stórmót. Miklar breytingar hafa orðið á sænska landsliðinu, ekki síst í stöðu línumanns, eftir að reynsluboltarnir Linn Blohm og Anna Lagerquist hurfu af sjónarsviðinu.

Emma telur að nýliðarnir geti fært liðinu aukinn kraft og jákvæðni.

„Ég held að sú staðreynd að það séu margir nýir leikmenn skapi ákveðinn drifkraft til að sýna að valið hafi verið rétt og að þetta sé rétti hópurinn. Það getur skapað aukna gleði hjá þeim sem eru að fara á sitt fyrsta stórmót og þessi jákvæðni mun skipta miklu máli,“ segir Emma.

Það er því óhætt að segja að Íslandsdvölin hafi reynst mikilvægur vendipunktur á ferli Emmu Olsson. Frá því að íhuga að hætta í handbolta eftir erfiðan tíma hjá Önnered fór hún í að slá í gegn með Fram í Olís-deildinni, tryggja sér samning við Borussia Dortmund og er nú á leið á sitt fyrsta stórmót með sænska landsliðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top