Jafntefli í hörkuleik í Virkinu
Emma Elísa Jónsdóttir

Víkingur 2 og Fjölnir mættust í Grill 66 deild karla í dag en leikið var í Virkinu - Safamýri.

Fjölnir voru betri aðilinn stærstan hluta fyrri hálfleiks. Mest náðu þeir þó bara að komast 4 mörkum yfir. Að öðru leyti voru þetta 1-2 mörk sem skildu liðin að lengi vel. Hálfleikstölur voru 12-14 fyrir Fjölni.

Í seinni hálfleik var leikurinn mjög jafn og skemmtilegur. Nánast jafnt á öllum tölum lengi vel og stál í stál.

Þegar 5 mínútur voru eftir fékk Óli Fannar Pedersen rautt spjald.

Lokamínúturnar voru æsispennandi. Eftir mikið japl, jaml og fuður undir lok leiks fór það svo að báðum liðum mistókst að sigra leikinn og urðu að sætta sig við jafntefli. Lokatölur 31-31.

Benedikt Emil Aðalsteinsson var markahæstur hjá Víking með 13 mörk. Markmennirnir Daði Bergmann og Hinrik skiluðu 19 boltum vörðum.

Hjá Fjölni var Þorleifur Rafn Aðalsteinsson markahæstur með 13 mörk. Hilmar Már Ingason varði 12 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top