Grótta og Valur 2 mættust í dag á Seltjarnarnesi í Grill 66 deild karla. Liðin eru á misjöfnum stað í deildinni. Grótta í 2.sæti með aðeins 1 tap og Valsarar í 7. sæti með 3 sigra í 11 leikjum. Gróttu menn voru betri allan fyrri hálfleikinn. Leiddu þeir m.a 8-5 eftir rúmt korter og þegar gengið var inn til búningsherbergja í hálfleik var staðan 15-12 fyrir heimamenn í Gróttu. Í seinni hálfleik var Grótta áfram sterkari aðilinn og alltaf með forskotið. Þeir náðu þó aldrei að slíta sig almennilega frá Völsurunum. Fór það svo að lokum að lokatölur urðu 31-26 fyrir Gróttu. Sanngjarn sigur hjá þeim. Hjá Gróttu voru Arnþór Sævarsson og Sæþór Atlason markahæstir með 9 mörk. Hannes Pétur Hauksson varði 13 skot. Hjá Val 2 var Logi Finnsson með 14 mörk. Anton Máni Heldersson varði 14 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.