Fram náði í 2 stig á Suðurnesjunum
Facebook

Víðir og Fram 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var í Garðinum á Suðurnesjum.

Bæði lið voru frekar fáliðuð í dag. Víðir með 11 leikmenn og Fram 2 aðeins með 10 leikmenn.

Það voru sveiflur í fyrri hálfleik. Bæði lið skiptust á að hafa yfirhöndina en Framarar fóru svo með 1 marks forskot inn í hálfleikinn. 15-16 voru hálfleikstölur.

Í seinni hálfleik tóku Framarar fljótlega öll völdin þar sem þeir komust mest 8 mörkum yfir. Var sigurinn aldrei í hættu og sigldu Framarar þessu nokkuð örugglega heim.

Lokatölur 25-30.

Hjá Fram var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 10 mörk. Jóhann Ágústsson varði 12 skot.

Hjá Víði var Guðmundur Þórir Sigurðsson markahæstur með 8 mörk. Jan Widera varði 16 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top