Nils Lichtlein í kapphlaupi við tímann fyrir HM
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Óvíst er hvort þýski landsliðsmaðurinn Nils Lichtlein verði klár fyrir HM á heimavelli í janúar. Leikstjórnandi Füchse Berlín hefur verið frá keppni vegna axlarmeiðsla síðan í október og segir að hann sé farinn að velta því fyrir sér hvað gerist ef hann nær ekki mótinu.

Lichtlein, sem er 24 ára, meiddist á öxl í leik gegn Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni. Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlín, sagði á dögunum að Lichtlein myndi ekki snúa aftur í byrjun desember.

Alfreð Gíslason velur þýska HM-hópinn 14. desember og telur Lichtlein að hann þurfi líklega að vera orðinn leikfær fyrir þann dag til að eiga möguleika á sæti í hópnum.

„Ég reyni að hugsa jákvætt en auðvitað hef ég velt því fyrir mér hvað gerist ef ég næ þessu ekki. Fyrsta markmiðið er einfaldlega að spila aftur eins fljótt og hægt er, fyrst og fremst með Füchse,“ sagði Lichtlein í samtali við þýska handboltamiðilinn handball-world.

„Við vonum öll að það takist í desember en enginn getur sagt það með vissu.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top