Eigum að vera fimm til sex mörkum betri en Ísland
Alex Nicodim / NurPhoto via AFP

Tomas Axnér, þjálfari sænska kvennalandsliðsins var ómyrkur í máli eftir 28-29 tap liðsins gegn Íslandi í vináttulandsleik þjóðanna í Malmö á fimmtudagskvöldið.

Axnér gagnrýndi sérstaklega frammistöðu útileikmanna sinna og kallaði eftir meiri áræðni hjá leikmönnum sínum þegar aðeins tæp vika er í að Evrópumótið hefjist.

Íslenska liðið hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik og þrátt fyrir að frammistaða sænska liðsins hafi batnað eftir hlé tókst heimakonum aldrei að snúa leiknum sér í vil. Axnér var langt frá því að vera sáttur með frammistöðu sinna kvenna í samtali við sænska ríkissjónvarpið, SVT, eftir leik.

„Mér finnst frammistaðan gefa ákveðna vísbendingu um hvar við stöndum. Þegar við náum ekki réttu getustigi frá upphafi, mætum ekki með rétt hugarfar og tökum ekki á móti andstæðingnum eins og við eigum að gera, þá getur þetta litið svona út. Við eigum að vera fimm til sex mörkum betri en Ísland og það getum við ekki sópað undir teppið.“

„Í hálfleik ræddum við um að við þyrftum að sýna meiri karakter og láta vaða. Við sýndum aðeins meiri orku og gerðum hlutina betur í seinni hálfleik sem varð til þess að við unnum hann. Það er hins vegar ekki nógu gott. Við virkum hikandi og mér finnst allir leikmenn okkar í skyttustöðunum spila allt of varfærnislega og vera of óvirkir nánast allan leikinn,“ sagði Axnér.

Mikil kynslóðaskipti standa nú yfir hjá sænska landsliðinu þar sem nýir leikmenn þurfa að axla aukna ábyrgð í fjarveru þeirra sem hafa borið liðið uppi undanfarin ár. Axnér kallar eftir því að leikmenn sínir sýni meira hugrekki í aðdraganda Evrópumótsins.

Sænska landsliðið fær tækifæri til að hefna ófaranna strax í dag þegar þjóðirnar mætast öðru sinni í Halmstad í síðasta leik liðanna fyrir Evrópumótið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top