Unnu 28. sigurinn í röð gegn sama liðinu
FRANK MOLTER /AFP

Þýska stórliðið THW Kiel vann sinn 28. sigur í jafnmörgum viðureignum gegn Bergischer HC í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Bergischer HC hefur þar með aldrei tekist að krækja í stig gegn þýska stórliðinu í Bundesligunni.

Arnór Þór Gunnarsson er þjálfari Bergischer. Það verður seint sagt að leikmenn Bergischer HC hlakki sérstaklega til þess að mæta Kiel en þrátt fyrir 28 tilraunir hefur liðinu hvorki tekist að vinna leik né gera jafntefli gegn félaginu í þýsku úrvalsdeildinni.

Leikmenn Bergischer HC fengu auk þess skemmri hvíld en leikmenn Kiel í aðdraganda viðureignarinnar í gærkvöldi vegna þátttöku liðsins í Evrópudeildinni á þriðjudagskvöld þar sem liðið tapaði gegn Birgi Steini Jónssyni og félögum í Savehof.

Kiel þurfti að vera án þýska landsliðsmannsins Julian Köster sem verður frá keppni næstu vikurnar vegna vöðvameiðsla í hægri kálfa.

Það kom þó ekki í veg fyrir að Kiel héldi ótrúlegri sigurgöngu sinni gegn Bergischer HC áfram. Leikmenn Bergischer þurfa því að bíða enn um sinn eftir tækifæri til að binda enda á þessa óskemmtilegu tölfræði.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top